Nýtt veiðisvæði
Nýtt veiðisvæði hefur verið skráð á vefinn. Hörðudalsá í dölum, 3 stanga bleikjuá með laxavon. Kynnið ykkur Hörðudalsánna hér vinstra megin á síðunni.
Nýtt veiðisvæði hefur verið skráð á vefinn. Hörðudalsá í dölum, 3 stanga bleikjuá með laxavon. Kynnið ykkur Hörðudalsánna hér vinstra megin á síðunni.
Miðasala á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð hófst formlega þann 10. febrúar. Uppselt var á sýninguna í fyrra en þá var sýningin haldin í fyrsta sinn á Íslandi og komust færri að en vildu. Um er að ræða einn alskemmtilegasta viðburðinum á dagatali stangveiðimanna og kvenna að undanskildum veiðitúrunum sjálfum. Sýningin fer fram í Bíó Paradís þann 10.
Nú hefur enn eitt veiðisvæðið verið skráð á síðuna. Um er að ræða eina af betri bleikjuám landsins, Norðfjarðará. Norðfjarðará hefur ekki lent í þeirri niðursveiflu sem gengið hefur yfir all flestar bleikjuár landsins. Veiðin hefur verið stöðug á bilinu 650-850 bleikjur auk 30-40 laxa ár hvert. Síðustu ár hefur fluguveiði verið allsráðandi í ánni
Nú geta félagar í SVFK sótt um veiðileyfi á veiðisvæðum félagsins. Umsóknarfrestur er fram í miðjan mars en verður endanlega auglýstur í félagsblaðinu sem verður tilbúið til dreifingar í kringum mánaðamótin. Engar verulegar breytingar hafa orðið á framboði veiðisvæða hjá Stangveiðifélaginu en meðal helstu svæða eru Geirlandsá og Reykjadalsá í Borgarfirði. Sjá nánar inná www.svfk.is
Fram kom í Morgunblaðinu, snemma í febrúar, að leigutaki Laxá á Ásum, Salmon Tails, er í viðræðum við veiðifélag árinnar um að selja silungsveiðileyfi í ós Laxár í mai og júní. Laxá á Ásum deilir ós með Vatnsdalsá en þar hafa menn bæði veitt bleikju og urriða um langt árabil. Hefur silungsveiðin í Vatnsdalnum verið vinsæl
Annað fréttabréf veida.is hefur nú verið sent til áskrifenda. Fréttabréfið verður sent reglulega út, einkum þó þegar ný veiðileyfi verða skráð á síðuna eða tilefni er til að kynna sérstaklega ný veiðisvæði. Í sumar verða fréttir af veiðisvæðum vefsins hluti af fréttabréfinu. Munið að skrá ykkur á póstlistann.
Nú hafa fleiri veiðisvæði verið skráð á vefinn. Um er að ræða þau veiðisvæði sem heyra undir Veiðifélagið Hreggnasi. Þar undir eru árnar Laxá í Kjós, Grímsá, Tunguá, Korpa, Svalbarðsá, Gljúfurá og Krossá. Hægt er að nálgast upplýsingar um þessar ár hér vinstra megin á síðunni.
Nýtt veiðisvæði hefur nú verið skrá á vefinn, Bjarnarfjarðará. Skoðið endilega upplýsingar og myndir af þessari stórgóðu bleikjuá hér til hliðar. Fleiri veiðisvæði verða skráð á vefinn nú í vikunni.
Fréttabréf veiða.is, nr. 2, kemur út innan skamms. Nú þegar líður að vori mun fréttabréfið koma út 2-3 í mánuði. Munum við gera veiðisvæðum vefsins góð skil, fara yfir laus veiðileyfi á síðunni, flytja fréttir og fjalla um hin ýmsu mál tengd veiði. Ég hvet alla sem ekki er nú þegar búnir að því, að skrá
Nú hafa 3 laus holl úr Vatnamótunum verið skráð á síðuna. Um er að ræða eitt vor holl, síðasta ágúst hollið á ódýrari tímanum og síðan eitt holl í byrjun október. Skoðið endilega upplýsingar um Vatnamótin hér til hliðar. Sjá laus veiðileyfi hér.
© Veiða.is | Sími +354 897 3443 | [email protected] | www.veida.is