Hlíðarvatn í Selvogi – almenn sala fyrir Árblik er hafin

Veiðileyfi í Hlíðarvatn í selvogi hafa verið í sölu hér á vefnum undanfarin veiðitímabil. Þau veiðileyfi hafa tilheyrt Stangaveiðifélagi Árbliks í Þorlákshöfn og Fluguveiðifélagi Ármanna. Nú höfum við hafið bókanir fyrir Árblik fyrir komandi tímabil en 2 stangir eru seldar saman í pakka, 1 dagur í senn. sjá hér.  Allur maí er uppbókaður en nokkrir júní

2023-01-23T18:58:03+00:0023. janúar 2023|Fréttir|

Galtalækur – leyfin fyrir 2023 komin á vefinn

Nú eru veiðileyfi í Galtalæk komin aftur inná vefinn fyrir komandi veiðitímabil. Veiði hefst í Galtalæk þann 1. apríl og stendur fram í September. Veitt er á 2 stangir í Galtalæk og eru þær stangir seldar saman í einum pakka. Verðið er fyrir 2 stangir. Sjá laus leyfi hérna. Galtalækur er góð 2ja stanga urriðaá

2023-01-07T11:36:33+00:007. janúar 2023|Fréttir|

Hólaá, Útey – vorveiðileyfin eru komin á vefinn

Vorveiðileyfin á Úteyjarsvæðið í Hólaá eru nú komin á vefinn. Sjá hér Hólaá rennur úr Laugarvatn, yfir í Apavatn og þaðan í Brúará. Hólaá er mjög góð bleikju og urriðaá og allt agn er leyfilegt, fluga/maðkur/spúnn. Bleikjan er alls ráðandi yfir sumarið í ánni en urriðinn yfirleitt sterkur á vorin og haustin. Úteyjar svæðið í

2023-01-04T10:26:02+00:004. janúar 2023|Fréttir|

Víðidalsá, Silungasvæði – laus holl næsta sumar

Silungasvæði Víðidalsár er neðsti hluti Víðidalsár áður en hún rennur í Hópið. Svæðið er eitt besta silungasvæði landsins. Mikið af vænni sjóbleikju veiðist á svæðinu en einnig veiðast vænir sjóbirtingar. Algeng stærð á bleikjunni er 2-3 pund, en 4-6 punda bleikjur veiðast iðulega. Leyfðar eru 3 stangir og eru þær ávallt seldar saman. Hérna má finna

2022-12-10T20:50:56+00:0010. desember 2022|Fréttir|

Hvannadalsá – veiðileyfin fyrir 2023 eru komin á vefinn

Veiðileyfi fyrir Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi eru komin í sölu, fyrir veiðitímabilið 2023. Veitt er á 2 stangir í Hvannadalsá og fluga er leyfilegt agn. Í Hvannadalsá veiðist lax og bleikja. Vorið og sumarið 2021 var mjög gott sjálfsmennsku veiðihús byggt við Hvannadalsá. 4 herbergi, góð stofa, rúmgott vel búið eldhús, stór pallur og margt

2022-12-08T14:39:11+00:008. desember 2022|Fréttir|

Gufuá – Veiðileyfin fyrir 2023 eru komin í sölu

Veiðileyfi í Gufuá eru nú aðgengileg hérna á vefnum. Veiðileyfi í Gufuá hafa verið í sölu hér á veiða.is í nokkur ár og því þekkja viðskiptavinir okkar nokkuð vel til árinnar. Gufuá getur orðið fremur vatnslítil á þurrkasumrum en þá er það yfirleitt neðsta svæðið sem heldur veiðinni upp í ánni. Gufuá deilir ósasvæði með Hvítá

2022-12-07T15:49:20+00:007. desember 2022|Fréttir|

Hallá á Skagaströnd – Bókanir hafnar fyrir 2023

Bókanir í Hallá á Skagaströnd eru hafnar á ný hér á veiða.is – Hallá er falleg lítil dragá sem rennur til sjávar rétt sunnan við Skagaströnd í um 10 mínútna fjarlægð frá þjóðvegi 1 við Blönduós. Veiðisvæðið er um 12 km að lengd og er veitt á tvær stangir. Leyfilegt er að veiða á flugu

2024-11-25T14:44:06+00:002. desember 2022|Fréttir|
Go to Top