Frábær veiði í Þingvallavatni

Það var ekki nóg með að veðurblíðan væri að gera útaf við veiðimenn sem stunduðu Þingvallavatn um helgina, heldur var veiðin með eindæmum góð. Að langmestu leyti var um bleikju að ræða og var mál manna að hún væri vænni þetta vorið/sumarið en oft áður. Mest virtist veiðast í kringum Öfugsnáðann nú um helgina. Við

2016-11-18T14:31:25+00:009. júní 2014|Fréttir|

Laxinn mættur í Ytri Rangá

Síðustu daga og vikur höfum við heyrt og séð fréttir af því að laxar eru mættir í flestar íslenskar ár og nú getum við staðfest að laxinn er mættur í aflahæstu laxveiðiá síðasta sumars, Ytri Rangá. Pálmi Ísólfsson kíkti í Djúpósinn við annan mann í gær, og þeir sáu amk. einn vænan 2ja ára lax

2016-11-18T14:31:25+00:009. júní 2014|Fréttir|

Veiðihelgi – myndir frá Þingvallavatni

Nú er ein mesta ferðahelgi ársins hafin, Hvítasunnuhelgin. Hluta úr þessari helgi er upplagt að nota til að kíkja í veiði með allri fjölskyldunni. Veiðikortið ætti að vera ferðafélagi hverrar fjölskyldu. Vel veiðist þessa dagana í mörgum vötnum og er Þingvallavatnið ekki undanskilið í þeirri upptalningu. Bleikjan er að sýna sig í miklu mæli og

2016-11-18T14:31:25+00:006. júní 2014|Fréttir|

Laus leyfi í Flókadalsá í Fljótum – sjóbleikja

Flókadalsá í Fljótum (efri) er fyrst og fremst mjög góð sjóbleikjuá þó einn og einn lax veiðist í ánni á hverju sumri. Áin er mjög skemmtileg veiðiá en hún liggur innst í Flókadalnum. Svæðið nær neðan frá Flókadalsvatni og fram að afréttargirðingu. Yfirleitt er áin fullbókuð þegar kemur inní sumarið en nú ber svo við

2016-11-18T14:31:25+00:006. júní 2014|Fréttir|

4 komnir á land í Norðurá og 1 í Blöndu

Veiðin fer vel af stað í Norðurá nú í morgun. Fyrsti laxinn kom á land rétt eftir kl. 7 og um hálf átta náði Bjarni Benediktsson einni 79cm, grálúsugri, hrygnu á Brotinu. Nú um kl. 11 voru 4 laxar komnir á land og amk. 3 aðrir höfðu náð að losa sig frá veiðimönnum. Í samtali

2016-11-18T14:31:25+00:005. júní 2014|Fréttir|

Fyrsti í laxi og fyrsti laxinn kominn á land

Laxveiðitímabilið er nú formlega hafið. Veiðimenn byrjuðu að kasta flugunni í Norðurá og Blöndu í morgun kl. 7 og nokkrum mínútum síðar kom fyrstu laxinn á land á veiðistaðnum Bryggjunni í Norðurá. Sigurður Sigfússon veiddi laxinn. Sigmundur Davíð reyndi einnig fyrir sér í Norðurá í morgun en fékk ekki lax. Bjarni Ben mun einnig renna

2014-06-05T08:06:41+00:005. júní 2014|Fréttir|

Veiðin eru hafin í Svartá í Skagafirði – myndir

Svartá er 4ra stanga urriðaá í Skagafirði. Undanfarin ár hefur verið unnið að rannsóknum á stofnunum árinnar með það að markmiði að byggja þá upp. Hefur það tekist mjög vel og hefur veiðin aukist mikið og urriðinn stækkað. Veiði hófst í ánni nú um helgina og kemur áin vel undan vetri. Valdemar Friðgeirsson var einn

2016-11-18T14:31:25+00:004. júní 2014|Fréttir|

Fyrsti í laxi er eftir 2 daga

Spennan er að magnast upp, hægt og hægt. Eftir 2 daga. Eftir ca. 34 klst, hefst laxveiðivertíðin með formlegum hætti. Við höfum heyrt sögur af því að einn eða tveir laxar hafi veiðst nú þegar á silungasvæðum laxveiðiáa, en það er á fimmtudaginn sem ballið byrjar. Stærstu árnar sem opna nú í vikunni eru Blanda

2016-11-18T14:31:25+00:003. júní 2014|Fréttir|

Réttu flugurnar í Ytri Rangá

Þegar farið er til veiða er mikilvægt að vera nokkuð öruggur með að vera með í boxinu, flugur sem virka í þeirri á eða því vatni sem sækja á heim. Júlli í Flugukofanum var yfir-Gæt í Ytri Rangá í fyrra sumar og við fengum hann til að velja fyrir okkur nokkuð skothelt box fyrir Ytri.

2016-11-18T14:31:25+00:001. júní 2014|Fréttir|

Ný veiðivideó á veiða.is

Hingað inná veiða.is höfum við safnað saman yfir 100 stuttum videóum úr hinum ýmsu vötnum og ám hér á landi. Videóin eru fengin að láni á youtube. Við vorum að bæta við nokkrum nýjum myndbrotum, m.a. úr Ytri Rangá og Þverá. Hægt er að sjá þau hér að neðan en einnig hérna.

2016-11-18T14:31:25+00:001. júní 2014|Fréttir|
Go to Top