Þingvallavatn opnar 20. apríl – fluga bara leyfð til 31. maí

Þingvallanefnd samþykkti á fundi sínum 6. mars sl. tillögur þjóðgarðsvarðar er varða breytingar á veiðireglum í Þingvallavatni fyrir þeirra landi. Veiðitíminn mun hefjast 20. apríl nk. í staðinn fyrir 1. maí. Frétt þess efnis birtist á vef Veiðikortsins í dag. Jafnframt mun veiðitímabilið 20. apríl til 31. maí verða fluguveiðitímabil og verður skylt að sleppa

2016-11-18T14:31:23+00:0012. mars 2014|Fréttir|

20 dagar í veiðivertíðina – aprílveiðisvæði

Það eru einungis um 20 dagar í að veiðivertíðin 2014 hefjist formlega og þegar viðrar jafn vel og í dag, hér á suð-vesturhorni landsins, er ekki laust við að gamall veiðifiðringur geri vart við sig aftur. Þó svo að margir séu búnir að tryggja sér sinn fyrsta veiðitúr þetta árið, nú í apríl, eru aðrir

2016-11-18T14:31:23+00:0011. mars 2014|Fréttir|

Fluguhnýtingar og hnýtingarefni

Nú eru fluguhnýtarar á fullu við að bæta í fluguboxinn. Flestir vilja eiga töluvert magn af sínum uppáhalds flugum en einnig reyna veiðimenn að upphugsa ný leynivopn fyrir veiðitímabilið. Júlli í Flugukofanum í Reykjanesbæ hefur yfirleitt verið vel birgur af nýju og spennandi fluguhnýtingarefni. Fyrir stuttu fékk hann stóra sendingu frá Hareline Dubbin í Bandaríkjunum

2014-03-06T10:04:33+00:006. mars 2014|Fréttir|

Svartá í Skagafirði – urriðaparadís á hagstæðu verði

Veiðimenn sem köstuðu flugum sínum fyrir urriðana í Svartá í Skagafirði síðasta sumar urðu sjaldnast fyrir vonbrigðum. Enda sýna mælingar að stefnan sem tekin var við ræktun stofnins í ánni fyrir nokkrum árum hefur borgað sig, fiskarnir fara stækkandi og þeim fjölgar. Og þegar veiðimenn hitta á góðar aðstæður og vanda sig, þá geta þeir

2016-11-18T14:31:23+00:005. mars 2014|Fréttir|

RISE – Fluguveiði Kvikmyndahátíðin 2014

RISE – Fluguveiði kvikmyndahátíðin er á morgun. Kvikmyndasýningin byrjar kl. 20 annað kvöld en fyrir bíósýninguna er veiðisýning þar sem all margir þeirra sem starfa á stangveiðimarkaðnum hér á landi, kynna sínar vörur. RISE – Fluguveiði kvikmyndahátíðin hefur síðustu ár markað upphaf veiðivertíðarinnar hér á landi. Þessar myndir er m.a. sýndar,LEVIATHAN (Trailer)Tributaries Fly Fishing Film

2014-03-05T10:42:20+00:005. mars 2014|Fréttir|

Suarez – veiðin straumfluga

Nú styttist óðfluga í veiðitímabilið og þeir sem eru búnir að bóka veiði snemma í apríl, eru byrjaðir og sumir langt komnir, að raða í fluguboxin og yfirfara veiðitöskuna. Ein er sú fluga sem sjóbirtingsveiðimenn hjá SVFK skilja aldrei eftir heima þessi misserin. Hún heitir Suarez. Ef hún „fær að byrja inná“ þá eru allar

2014-02-27T16:06:47+00:0027. febrúar 2014|Fréttir|

Nessvæðið í Laxá í Aðaldal – laus leyfi

Laxá í Aðaldal er klárlega ein þekktasta laxveiðiá landsins. Laxá skiptist í nokkur svæði en þekktasta svæðið, það vinsælasta og líklega það besta, hefur verið nefnd Nesveiðar einu nafni.  Síðasta sumar, sumarið 2013, veiddust 2 stærstu laxar ársins hér á landi, á Nessvæðinu. Veitt er á 8 stangir á svæðinu og leyfilegt agn er fluga. Fyrir skömmu

2016-11-18T14:31:23+00:0026. febrúar 2014|Fréttir|

Veiðileyfi í Hallanda í Hvítá komin í vefsöluna

Veiðisvæði Hallanda í Hvítá í Árnessýslu er eitt þeirra veiðisvæða sem á sér langa sögu, þó svo að það hafi til langs tíma tilheyrt Langholtinu. Nú er svæðið selt sér og eru leyfðar 2 stangir á svæðinu. Seldir eru stakir dagar og veitt er frá morgni til kvölds. Stangirnar eru seldar saman. Fram til 20.

2016-11-18T14:31:23+00:0023. febrúar 2014|Fréttir|

Hlíðarvatn í Selvogi er komið í vefsöluna

Hlíðarvatn í Selvogi er eitt gjöfulasta vatn landsins til bleikjuveiða. Vatnið er um 50 km frá Reykjavík, á milli Þorlákshafnar og Krýsuvíkur. Veitt er með 14 stöngum í vatninu og skipta 5 veiðifélög stöngunum á milli sín. 2 þessara stanga eru til sölu hér á veiða.is. Árblik í Þorlákshöfn hefur þessar stangir til ráðstöfunar. Stangirnar

2014-02-20T20:33:42+00:0020. febrúar 2014|Fréttir|

Gíslastaðir við Hvítá – laus leyfi

Hvítá í Árnessýslu hefur í tugi ára verið þekkt laxveiðiá og hafa margir af stærstu löxum landsins, veiðst í ánni. Áin geymir mörg stök veiðisvæði og löngum hefur hver bær selt leyfi fyrir sínu landi. Gíslastaðir við Hvítá er eitt þessara svæða. Veitt er með 3 stöngum á Gíslastöðum og leyfilegt er að veiða á

2014-02-19T16:44:37+00:0019. febrúar 2014|Fréttir|
Go to Top