Tangavatn er lítið manngert vatn skammt frá bænum Galtalæk II í Rangárvallarsýslu, í um 115 km fjarlægð frá Reykjavík, en rúmlega 30 km fjarlægð frá þjóðvegi 1, beygt upp veg nr.26.

Á Galtalæk II er/var eldisstöð frá fiskeldinu í Fellsmúla, þar sem hinn víðfrægi ísaldarurriði er alinn upp áður en honum er sleppt í Veiðivötn, en einnig er þar alinn fiskur af Grenlækjarstofni. Þessum fiski er sleppt í Tangavatn.
Í vatnið hefur bæði urriða, sjóbirtingi og bleikju verið sleppt. Veiði er oft mjög góð í vatninu.

Í sumar verður að hámarki 4 stangir seldar í vatnið hvern dag og fluga verður eina leyfilega agnið. Upplagt er fyrir þá sem bóka í Galtalæk, að bæta við stöng í vatninu.

Hérna má sjá nánari upplýsingar um vatnið.