Veiðivefurinn veida.is er óháður vettvangur fyrir veiðileyfasala til að nálgast kaupendur veiðileyfa. Eigendur veida.is hafa verið áhugasamir veiðimenn í um 30 ár, en aldrei átt hlut í veiðiá eða fyrirtæki sem hefur rekið veiðiá. Við vonum að sem flestir sjái ástæðu til að leita inná vefinn þegar til veiða skal haldið. Á veida.is er hægt að nálgast upplýsingar um fjölmörg veiðisvæði en jafnframt stefnum við á að bjóða uppá fjölbreytt úrval veiðileyfa, bæði í lax og silung, hvort sem er í vötn eða ár.

Fyrir utan það að kynna mikið úrval veiðisvæði og vera umboðsseljendur veiðileyfa, þá mun vefurinn einbeita sér að því að vera alhliða afþreyingarvefur fyrir alla stangveiðimenn. Í því skyni munum við halda úti umræðutorgi, birta veiðivideo og veiðimyndir, halda útí smá fluguhnýtingahorni, birta fréttir og gera ýmislegt fleira sem styttir stundir veiðimanna þegar þeir standa ekki sjálfir útvið á. 

 

Ábyrgðarmaður og vefstjóri veida.is er Kristinn Ingólfsson. Hægt er að ná í ábyrgðarmann vefsins með því að senda póst á netfangið [email protected] eða í síma 897 3443.

Veiða.is er í eigu R&R slf Kt. 710112 0450, sem starfar m.a. sem Ferðaskrifstofa skv. Reglum Ferðamálastofu Íslands.