Holl
3 stangir í Hrútafjarðará 18-20. Júlí 2026
2 dagar, hálf – heill – hálf
verð fyrir hollið, kr. 1.390.000 með húsi – uppábúið og þrif
Hrútafjarðará er vinsæl laxveiði á og ein af al-bestu fluguveiðiám landsins með 10 ára meðalveiði yfir 400 laxa á einungis þrjár stangir. Sjóbleikja veiðist líka og þá gjarnan á neðsta svæði árinnar og sumar mjög vænar. Veiði hefst í júní og lýkur í lok september og fyrrihluta sumars er góð von í stórlaxi og laxar um eða yfir 10 kg veiðast í Hrútafjarðará árlega.
Stangirnar þrjár eru seldar saman og aðgangur að veiðihúsi fylgir án sérstaks endurgjalds fyrir allt að 8 manns og því tilvalinn valkostur fyrir smærri hópa.
Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 160 km.
Veiðisvæði: Hrútafjarðará öll ásamt Síká.
Tímabil: 21.júní – 30.september.
Veiðireglur: Fluga eingöngu leyfð og er skylt að sleppa öllum löxum 70 cm og stærri og kvóti er einn laxar á stöng á dag undir þeim stærðarmörkum og veitt og sleppt eftir það.
Veiði síðastliðin ár: Um 200 laxar og 200 sjóbleikjur og sjóbirtingar.
Veiðihús fyrir Hrútafjarðará er í landi Bálkastaða neðarlega í ánni að austanverðu á milli Síkár og gamla Staðarskála. Fjögur tveggja manna herbergi eru í húsinu sem eru uppábúinn og með handklæðum við komu veiðimanna sem mega koma um og eftir kl. 14 á komudegi. Því geta átta manns gist í veiðihúsinu. Tvö baðherbergi með sturtu, sérstakt vöðlu-og þurrkherbergi og fiskmóttaka eru í húsinu.
Gott eldhús og stofa með stórum arinn setur mikinn svip á allt húsið. Stór verönd með grilli er við húsið. Og nú komið á sauna á veröndina, þar með er öll aðstaða enn betri og fer vel um veiðimenn er óhætt að segja í nýja saunahúsinu. Sturta hefur einnig verið sett upp við hliðina. Þráðlaust internet er til afnota fyrir gesti.
