Veiðsvæðið Brennan er við ármót Þverár og Hvítár í Borgarfirði. Sá fiskur sem er á leið í Þverá fer þarna um. Í Brennunni hafa veiðimenn mest veitt í vatnaskilunum þar sem árnar mætast.
Veitt er á 3 stangir í Brennunni mest allt tímabilið og leyfilegt er að veiða á flugu allt tímabilið en í ágúst og september er einnig leyfilegt að veiða á spún.
2 rúmgóð veiðihús standa veiðimönnum til boða sem veiða Brennu í Borgarfirði. Húsgjald er greitt með hverju holli, kr. 69.000 og er húsgjaldið innifalið í verði.
Veiðin er oft ævintýralega góð á svæðinu. Framan af sumri er laxinn aðal uppistaðan í veiðinni en þegar kemur undir lok júlí, þá fer sjóbirtingur að ganga að krafti upp í árnar.
| Image | Vara | Verð | Staða | Staðsetning | Tímabil | Aðgerð | hf:tax:product_cat | hf:tax:product_tag |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Brennan 9-10. júlí 2026. 3 stangir í 1 dag. Húsgjald innifalið | 543.000kr. | Ekki á lager | Brennan í Borgarfirði, Laxveiði, Veiðileyfi, Vesturland | Júlí | Skoða | brennan-i-borgarfirdi laxveidi veidileyfi vesturland | juli | |
| Brennan 30. ágúst - 1. sept 2026. 3 stangir í 2 daga. Húsgjald innifalið | 432.000kr. | Ekki á lager | Brennan í Borgarfirði, Laxveiði, Veiðileyfi, Vesturland | Sept | Skoða | brennan-i-borgarfirdi laxveidi veidileyfi vesturland | sept | |
| Brennan 1-3. sept 2026. 3 stangir í 2 daga. Húsgjald innifalið | 432.000kr. | Ekki á lager | Brennan í Borgarfirði, Laxveiði, Veiðileyfi, Vesturland | Sept | Skoða | brennan-i-borgarfirdi laxveidi veidileyfi vesturland | sept |
