Fossá – Silungasvæði
Staðsetning: 115 km from Reykjavik.
Tímabil: 15 Júní – 1 September.
Besti tíminn: 20. júní – 10. ágúst.
Lengd: 16 km, báðir bakkar. Fullt af veiðistöðum.
Rods: 2
Veiðihús: Ekkert veiðihús er á svæðinu.
Silungasvæði Fossár er 2ja stanga veiðisvæði sem nær frá Háafossi að ofanverðu að Hjálmarfossi að neðanverðu. Þessir fossar eru ófiskgengir en á milli fossana er mikið magn af urriða, bæði stórum og smáum. Háifoss er næst stærsti foss landsins og það getur verið ansi tilkomumikið að standa fyrir neðan hann og veiða fosshylinn, sem gefur oft góða fiska.
Efri hluti silungasvæðis Fossár rennur í Gljúfri. Fáir veiðimenn veiða þetta svæði en þegar það er gert, þá hefur það stundum gefið mjög góða veiði. Þegar neðar er komið þá má finna fisk víða, á liggnum, í strengjum eða undir bökkum. Veiðistaðir eru ekki merktir við Fossá og krefst þetta veiðisvæði því þess að veiðimenn séu duglegir að ganga, leita og prufa sig áfram.
Öllum fiski skal sleppt aftur.
Contact info
E-mail: [email protected]
Tel: +354 897 3443