Fremri Laxá
Fremri Laxá er ein af betri urriðaám landsins. Sá fjöldi urriða sem gengur í ána yfir sumarmánuðina er gríðarlegur og oft er veiðin það mikil að veiðimenn tapa fljótt tölunni á fjölda fiska. Urriðinn í Fremri Laxá er kannski ekki mjög stór, en hann er sterkur og sprækur. Góður fjöldi af urriðum á bilinu 50-60 cm veiðast þó á hverju ári.
Veiði síðustu ár: 2008, 5.456 urriðar. 2009, 4.009 urriðar. 2010, 3.376 urriðar. 2011, 3.622 urriðar. 2012, 3.199 urriðar. 2013, 3.112 urriðar.
Fjöldi stanga: 3 stangir.
Tímabilið: 20. maí til 15. sept.
Veiðitími: Heimilt er að veiða hvenær sem er sólahringsins, þó aldrei lengur en 12 tíma innan hans.
Veiðihús: Húsið er komið vel til ára sinna en í því geta 6 manns gist. Stutt er til veiða frá húsinu.
Fremri Laxá er bergvatnsá sem rennur í Laxárvatn en á uppruna sinn í Svínavatni. Áin er fremur nett veiðiá, kjörin fyrir fluguna og ekki síður þurrfluguna. Á hverju sumri veiðast nokkrir laxar í Fremri Laxá. Sem dæmi um það veiddust 28 laxar sumarið 2010, 47 laxar sumarið 2013 og 40 laxar 2015. Í gegnum tíðina hafa hóparnir sem sækja ánna heim verið henni mjög trúir og komið ár eftir ár enda er hún fjölskylduvæn með góðu aðgengi að mörgum góðum hyljum.