Grjótá og Hítará II

Almennar upplýsingar

Staðsetning: Á Mýrunum um 100 km frá Reykjavík

Veiðisvæði: Grjótá öll frá mörkum Hítarár að tveimur efstu veiðistöðum Grjótár 31 og 32 sem eru friðaðir. Hítará frá Úrhyl og upp að stíflu við Hítarvatn.

Tímabil: 19. júní til 21. september.

Veiðileyfi: Veitt er á 2 stangir í tveggja daga hollum frá hádegi til hádegis.

Daglegur veiðitími: 7.00–13.00 og 16.00–22.00 en frá og með 14. ágúst kl. 7.00–13.00 og 15.00– 21.00.

Fjöldi stanga: 2 stangir seldar saman

Leyfilegt agn: Í Hítará II, Grjótá og Tálma er einungis leyft að veiða á flugu og nota til þess fluguveiðistangir. Kaststangir eru ekki leyfðar.

Vinsælar flugur: Svört Frances, Rauð Frances, Sunray Shadow, Collie Dog, Gáru-túpa.

Meðalveiði: Um 150 laxar á ári.

Kvóti: Leyfilegt er að drepa 2 laxa á meðan veiðitíma stendur þannig að hver stöng fer heim með hámark 2 laxa að veiðitíma loknum. Neyðist menn til að drepa stórlax vegna tálknblæðingar gengur hann til veiðihúss Hítarár I. Sömuleiðis, verði menn að drepa lax umfram leyfilegan kvóta, gengur sá fiskur til veiðihúss Hítarár I.

Veiðin

Þetta er hin fullkomna veiði fyrir litla hópa og fjölskyldur. Eingöngu er veitt er á flugu í Hítará II og Grjótá. Rúmgott veiðihús fylgir veiðileyfum. Grjótá fellur í Hítará. Náttúrufegurð er mikil á svæðinu og þarna er að finna marga veiðistaði sem henta vel fyrir alla fjölskylduna.

Leyfilegt er að drepa 2 laxa á meðan veiðitíma stendur þannig að hver stöng fer heim með hámark 2 laxa að veiðitíma loknum. Eftir það má veiða og sleppa. Öllum laxi yfir 70 cm skal sleppt. Neyðist menn til að drepa stórlax vegna tálknblæðingar gengur hann til veiðihúss Hítarár I. Sömuleiðis, verði menn að drepa lax umfram leyfilegan kvóta, gengur sá fiskur til veiðihúss Hítarár I.

Veiðihús

Herbergi: 4 tveggja manna herbergi
Svefnpláss: Fyrir 8 manns
Vöðlugeymsla: Nei
Fjöldi sænga: 8

Gott veiðihús er á svæðinu með fjórum svefnherbergjum, staðsett við Grjótá og fylgir með veiði í Grjótá og Hítará II. Gert er ráð fyrir því að veiðimenn sjái um sig sjálfir og komi með eigin mat. Gasgrill fylgir húsinu og fullbúið eldhús með uppþvottavél.
Við komu er húsið hreint, uppbúin rúm og hrein handklæði. Veiðimenn þurfa ekki að þrífa húsið við brottför, þessi þjónusta er innifalin í verðinu. Fólksbílafært er að húsinu.

Veiðimenn mega koma í húsið einni klst. fyrir veiðitíma og ber að rýma það einni klst. eftir að veiðitíma lýkur.

Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ekið er út af þjóðveginum vestur á Snæfellsnes sunnan Hítarár og haldið upp eftir vegi 539. Ekið er yfir brúna á Grjótá og er húsið þá á hægri hönd.

Hafðu samband

Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 897 3443

Facebook