Hvolsá og Staðarhólsá

Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík ca. 180 km.
Veiðisvæði: Öll Hvolsá og Staðarhólsá ásamt lóninu.
Tímabil: Veiðitíminn er frá 1. juli – 30. september.
Daglegur veiðitími:  Veitt er frá kl. 7.00 til 13.00 og 16.00 til 22.00 daglega yfir sumarið en frá 10/8 er seinni vaktin frá 15-21. Eftir 20. sept er seinni vaktin frá 14-20.
Fjöldi stanga:   4
Leyfilegt agn:   Fluga og maðkur.
Vinsælar flugur:  Heimasætan, Bleik og Blá, Dentis og ýmsir Kúluhausar
Hvolsá og Staðarhólsá falla í einum ósi til sjávar í Saurbæ, Dalasýslu. Hvolsá sjálf er 9 km. löng þangað sem Svínadalsá og Brekkudalsá sameinast. Staðarhólsá er laxgeng 7,5 km að fossi hjá Kjarlaksvöllum. Norðan við ósana er varnargarður sem myndar lón sem stendur eftir þegar fjarar, en sjór fellur upp í báðar árnar.
Meðalveiði áranna 1974 til 2008 er 166 laxar og 5-600 bleikjur.     Kort af hvolsa og stadarholsa

Veiðihús

Góð aðstaða er í veiðihúsinu Árseli sem er staðsett við Þjóðveginn skammt frá Hvolsá. Í húsinu er m.a. fjögur tveggja manna herbergi og tvö eins manns herbergi, góð borðstofa og setustofa með sjónvarpi og góðum stólum. Sængur og koddar eru í húsinu en veiðimenn koma með sængurver/koddaver/lök. Koma má í hús kl. 15 (14 e. 10/8) á veiðidegi, og yfirgefa skal húsið eigi síðar en 13:30. Hægt er að kaupa þrif á húsinu en bóka þarf það amk. 24 klst fyrir brottför. Ef óskað er eftir þrifum, þá þarf að tæma húsið eigi síðar en kl. 12:30 á brottfaradegi. Húsinu skal skilað hreinu.

Ath – Gæludýr eru ekki leyfð á svæðinu eða í húsinu.

Hafðu samband

Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 897 3443

Facebook