Fáskrúð í Dölum er einstaklega falleg, fjölbreytt og skemmtileg laxveiðiá í stórbrotnu umhverfi. Hún á upptök sín á Gaflfellsheiði tugi kílómetra frá sjó og fellur svo til sjávar í Hvammsfjörð um 8 km fyrir norðan Búðardal.

Veiðisvæðið er um 14 km frá Katlafossi til sjávar og þar er að finna 55 merkta veiðistaði, allt frá kröftugum strengjum í fallegar breiður. Þrátt fyrir að Fáskrúð sé á köflum í stórgrýttu gili er hún mjög aðgengileg og fær öllum fjórhjóladrifnum bifreiðum.

Eina leyfilega agnið í Fáskrúð er því fluga og skylt er að sleppa öllum löxum stærri en 69 cm. Leyfilegt er að drepa einn hæng á stöng á vakt.

Veiðihúsið við Fáskrúð er staðsett á jörðinni Ljárskógar, sem liggur að suðurbakka Fáskrúðar. Aðbúnaður í veiðihúsinu er eins og best verður á kosið með rúmum fyrir 6-7 veiðimenn, ríkulega útbúnu eldhúsi, góðri borðstofu og stofu með arni og frábæru útsýni yfir Hvammsfjörð. Rúmgóð vöðlugeymsla er í húsinu og auk þess gufubað þar sem veiðimenn geta slakað á eftir ánægjulegan veiðidag.

ImageVaraVerðStaðaStaðsetningTímabilAðgerðhf:tax:product_cathf:tax:product_tag
Fáskrúð
Fáskrúð í Dölum, hollið 2 - 4. Júlí 2026. 2 stangir í 2 daga.244.000kr.

1 á lager

, , , Skoðafaskrud-i-dolum laxveidi veidileyfi vesturlandjuli
Fáskrúð
Fáskrúð í Dölum, hollið 8 - 10. Júlí 2026. 2 stangir í 2 daga.335.000kr.

1 á lager

, , , Skoðafaskrud-i-dolum laxveidi veidileyfi vesturlandjuli
Fáskrúð
Fáskrúð í Dölum, hollið 25-27. ágúst 2026. 3 stangir í 2 daga.596.000kr.

1 á lager

, , , Skoðafaskrud-i-dolum laxveidi veidileyfi vesturlandagust
Fáskrúð
Fáskrúð í Dölum, hollið 2-4. sept 2026. 3 stangir í 2 daga548.000kr.

1 á lager

, , , Skoðafaskrud-i-dolum laxveidi veidileyfi vesturlandseptember
Go to Top