Ytri Rangá er ein þekktasta og besta íslenska laxveiðiáin. Fjölbreyttir veiðistaðir, frábær veiði og fallegt umhverfi hefur gert hana að einni af vinsælli veiðiám landsins. Meðalveiði á sumri, síðustu 10 árin, er um 4.600 laxar.

Mest var veiðin sumarið 2008 þegar 14.315 komu á land. Það er langmesti afli sem vitað er að veiðst hafi á stöng í einni laxveiðiá hérlendis til þessa.

Veiðitímabilið í Ytri er frá 20. júní og fram að 20. október. Veitt er á flugu frá opnun og fram í byrjun september en þá má einnig veiða á maðk og spún.

Greitt er sérstaklega fyrir fæði og gistingu. Verðin hér að neðan eru fyrir veiðileyfin.
Húsgjald er kr. 45.000

Stangarfjöldi 16 á þeim tíma sem leyfin að neðan eiga við.

Fjöldi veiðisvæða: 8, 2 stangir saman á hverju svæði , dregið er um svæði á komudegi og rótera veiðimenn niður ána. Það tekur 2 daga að fara yfir alla ánna/öll veiðisvæðin. Áin róterar á oddatölum eða slettum tölum. Ef veiðimaður dregur t.d. svæði no 5 mun viðkomandi rótera 5-3-1-8-6-4-2

Veiðitími: 7-13 og 15-21 yfir sumarið.

ImageVaraVerðStaðaStaðsetningTímabilAðgerðhf:tax:product_cathf:tax:product_tag
Ytri-Rangá. Veitt með, Guðbrandur Einarsson.
Ytri Rangá - 1 stöng í 1 dag, 5-6. júlí 2026 - húsgjald greitt sér102.000kr.

Ekki á lager

, , , , Skoðalaxveidi rangarnar sudurland veidileyfi ytri-rangajuli
Go to Top