Veiðileyfi í Sog Bíldsfell silungsveiði að vori
Veiðitímabilið er 1. maí til 10. júní
Seldir eru stakir dagar, frá morgni til kvölds.
Greitt er fyrir 2 stangir, en veiða má á 3 stangir
Veiðitími: Veidd er ein samfelld vakt frá klukkan 8-20 án hlés.
Leyfilegt agn: Fluga eingöngu
Veiðireglur: Veiða og sleppa eingöngu bæði á silungi og laxi.
Veiðisvæðið: Veiðisvæði Bíldsfells er á Vesturbakka árinnar. Veiða má frá veiðimörkum við útfallið úr virkjunni, að ofanverðu og niður að Torfastaðasvæðinu.
ATH. Öll veiði á Bíldsfellsbreiðunni og Görðunum er undanskilin í vorveiðinni – veiða má frá Bakka á þessu svæðum, en ALLS EKKI VAÐA ÚT Á BREIÐUNA – hún er eitt aðal hrigningarsvæði laxins í Soginu
´
Veiðihús: Þegar stakir dagar eru seldir, þá fylgir ekkert hús. Hægt er að bóka húsið í Alviðru – hafið samband
Veiðin: Bíldsfellssvæðið geymir mikið af bleikju sem oft er mjög væn. Einnig má vænta þess að hitta á sjóbirting og staðbundinn urriða á svæðinu.
| Image | Vara | Verð | Staða | Staðsetning | Tímabil | Aðgerð | hf:tax:product_cat | hf:tax:product_tag |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Bíldsfell 8. júní - vorveiði - Heill dagur - greitt fyrir 2 stangir en veiða má á 3 stangir | 29.000kr. | Ekki á lager | Bíldsfell - Silungsveiði, Vor, Silungsveiði, Sjóbirtingsveiði, Sogið, Suðurland, Veiðileyfi | Júní | Skoða | bildsfell-sog-silungsveidi-vor silungsveidi sjobirtingsveidi sogid sudurland veidileyfi | juni |
