Veiðileyfi í Hólaá, Útey.
Hólaá rennur úr Laugarvatni og niður í Apavatn, og þaðan niður í Brúará. Áin er nokkuð vatnsmikil og hún er mjög góð veiðiá, ekki síst efsti hlutinn – Úteyjarsvæðið. Bleikja er ráðandi í ánni á sumrin en urriðinn er sterkur á vorin og haustin.
ÚTEYJARSVÆÐIÐ
Þegar bókuð eru leyfi á Úteyjarsvæðið, þá fylgir leyfi í hluta af Laugarvatni.
Leyfilegt Agn:
Áin, Fluga er eina leyfilega Agnið í Júní-Júlí-Ágúst. Á vorin og í September er einnig leyfilegt að veiða á spún. Undantekning frá Fly only: mjög slæmt veður og börn yngri en 10 ára.
Vatnið, Fluga+spúnn+maðkur leyfður allt tímabilið.
Veiðitímabilið: 1. apríl – 24. sept
Fjöldi Stanga: Leyfðar eru 8 stangir á svæðinu og eru þær seldar hér á vefnum.
Ekki er reiknað með að veiðimenn deili stöng. 1 leyfi = 1 veiðimaður.
Veiðireglur: Veiðimenn eru hvattir til að hirða fisk í hófi á veiðisvæðinu – þess utan er 3 bleikju kvóti í júní, júlí og ágúst. Veiðimenn eru hvattir til að sleppa öllum fiski í ánni á vorin og í September.
