Minnivallalækur á fáa sína líka í heiminum. Kristaltært og frjósamt lindarvatnið veitir umgjörð utan um einhver allra bestu búsvæði urriða sem fyrirfinnast á Íslandi og sennilega víðar um heim.

Staðsetning lækjarins á yngsta landsvæði landsins gerir það að verkum að þegar vatnið kemur upp á yfirborðið undan hrauninu er hitastig þess mjög jafnt, leiðnin há og frjósemi mikil. Við þessi skilyrði er skordýralíf í blóma og sökum þess hversu hægrennandi lækurinn er hentar hann urriða feykivel.

Að hámarki veiða 4 stangir í Minnivallalæk, og venjulega eru þær allar seldar saman.

Fluga er eina leyfilega agnið og skal sleppa öllum veiddum fiski.

Gott veiðihús er við Minnivallalæk og fylgir það leyfunum að öllu jöfnu.

Vorið 2022 stendur yfir viðhaldsvinna við veiðihúsið. Frá 1. apríl og inní Maí, þá verður hægt að bóka bæði stakar stangir og stundum 2 stangir í pakka, án þess að gisting fylgi með. Hægt er að nýta húsið sem afdrep yfir daginn, en ekki til gistingar.

Veiðitími – Max 12 tímar á dag.

ImageVaraVerðStaðaStaðsetningTímabilAðgerðhf:categorieshf:tags
Minnivallalækur, 7-9. maí 2023. Verð fyrir 4 stangir í 2 daga
Minnivallalækur, 7-9. maí 2023. Verð fyrir 4 stangir í 2 daga240.000kr

1 á lager

, , , Skoðaminnivallalaekur silungsveidi sudurland veidileyfimai

Title

Go to Top