Torfastaðir
Tímabilið hefst 1. apríl. Á vorin má eiga von á að veiða bæði bleikju, sjóbirting og stöku niðurgöngulax. Sleppiskylda er á öllum fiski. Þegar kemur inní sumarið þá eykst laxavonin einnig, en allur fiskur sem gengur uppá Bíldsfells og Ásgarðssvæðið, gengur í gegnum Torfastaði.
Torfastaða svæðið í Soginu er svæði sem ekki hefur mikið farið fyrir í gegnum árin, þó menn hafi vitað af mjög góðri veiði, bæði á silungi og laxi.
Torfastaðir eru á milli Alviðrusvæðisins og Bíldfellsins, á vesturbakka Sogsins. Svæðið nær frá ósum Tunguár, og niður að Álftavatni.
Veitt er á 2 stangir á svæðinu, sem er rétt um 1,5 km langt. Gott aðgengi er að flestum stöðum en einnig auðvelt að “skanna” það á tveimur jafn fljótum.
Sendið veiðiskýrslu á [email protected] eða skráið veiðina í veiðibókina sem er hérna.
Fluga er eina leyfilega agnið á svæðinu, eins og allstaðar í Soginu sjálfu. Öllum laxi skal sleppt aftur og sama gildir um bleikjuna.
9 merktir veiðistaðir eru á svæðinu. Einhendur duga ágætlega til að veiða þessa staði, en þó geta tvíhendur komið að góðum notum ef leitað er af laxi.
Bleikjuveiði á Torfastaðasvæðinu er oft mikil og góð, bleikjurnar geta verið mjög vænar, alveg eins og annar staðar í Soginu.
Ath. Sleppi skylda á öllum fiski.
