Veiðisvæðið við Sog Bíldsfell er vesturbakki Sogsins frá útfallinu fyrir neðan Írafossstöðina og niður að Tunguánni þar sem veiði fyrir landi Torfastaða hefst.
Veitt er með 3 stöngum á svæðinu og eru þær yfirleitt seldar allar saman – en valda daga í júni þá er hægt að kaupa staka daga og stakar stangir í Bíldsfelli – Verð á stangardag er kr. 38.900.
Veitt er frá morgni til kvölds, frá 7-13 og 16-22
Meðal annars er um að ræða daga á stórstreymis tíma, þegar stórlaxinn er að skríða uppí Sogið.
 
			
					 
													 
				 
				 
				 
				 
				