Víðidalsá, Silungasvæði – laus holl fyrir 2024 komin á vefinn
Silungasvæði Víðidalsár er neðsti hluti Víðidalsár áður en hún rennur í Hópið. Svæðið er eitt af betri silungasvæðum landsins. Mikið af vænni sjóbleikju veiðist á svæðinu en einnig veiðast vænir sjóbirtingar. Algeng stærð á bleikjunni er 2-3 pund, en 4-6 punda bleikjur veiðast iðulega. Leyfðar eru 3 stangir og eru þær ávallt seldar saman. Hérna