Vatnsá – laus haustholl – lax og birtingur
Örfá holl laus í Vatnsá. Lax og sjóbirtingur. 2 stangir seldar saman í pakka, með húsi. Stangardagurinn á kr. 65.000 Sjá laus holl hérna.
Örfá holl laus í Vatnsá. Lax og sjóbirtingur. 2 stangir seldar saman í pakka, með húsi. Stangardagurinn á kr. 65.000 Sjá laus holl hérna.
Nú fer að hilla undir lok veiðitímabilsins en enn eru þó 2-3 vikur eftir af veiðinni í mörgum ám. Hérna á vefnum má finna laus holl í nokkrar laxveiðiár. Veiðin í þeim öllum hefur verið ágæt undanfarna daga. Veðrabreyting með vætu í forgrunni, hefur haft góð áhrif. Hollin eru á fínu verði. Hvolsá og Staðarhólsá
Við vorum að setja í sölu nokkur haust holl í Hvolsá og Staðarhólsá. Laxveiði þar sem leyfilegt er að veiða á flugu og maðk. Nú fer að hausta og þá hljótum við að fá rigningu. Það þýðir yfirleitt góða veiði í Hvolsá og Staðarhólsá. Við eigum nokkur haust holl H&S sem við vorum að setja
Veiðin í Djúpinu fór rólega af stað en síðustu holl hafa verið að sjá aukið líf, amk. í Hvannadalsá. Síðasta holl landaði 4 löxum og missti nokkra nýrunna laxa - sama má segja um hollin á undan. Bæði Hvannadalsá og Langadalsá eru ekki síst, síðsumarsár. Veiðin eykst eftir því sem líður á sumarið og nær
Vatnsá rennur úr Heiðarvatni í Mýrdal, rétt fyrir ofan Vík. Veitt er á 2 stangir í Vatnsá og fluga er leyfilegt agn. Mikið af sjóbirtingi veiðist í Vatnsá ár hvert í Vatnsá auk þess að áin er drjúg laxveiðiá. Mjög gott veiðihús er við Vatnsá. Husið var endurbyggt árið 2021 og er eitt alglæsilegasta sjálfsmennsku
Gufuá, er eins og flestir vita, lítil, jafnvel mjög lítil laxveiði rétt norðan við Borgarnes. Gufuá á sameiginlegan ós með Hvítá. Veitt er með 2 stöngum í Gufuá og leyfilegt agn er fluga og maðkur. Verð veiðileyfa í Gufuá er stillt í hóf. Gufuá er þekkt fyrir að verða mjög vatnslítil, en þá einbeita veiðimenn
Við vorum að fá til okkar 1 forfallastöng í Blöndu. Svæðin sem veidd eru, eru svæði I-II og III. Róterað er á milli svæða. Verð er kr. 185.000 stangardagurinn, samtals kr. 370.000. Veiðitíminn er 28-30. júlí. Síðdegis vakt 28 júlí, heill 29. júlí og fyrir hádegi 30. júlí. Helgarveiði. Húsgjald er greitt í veiðihúsinu. Sendið
Sogið virðist vera með líflegra móti þessa dagana. Veiðimenn hafa verið að setja í og landa löxum víða um ána. Alveg frá Alviðrunni og uppúr. Veiðimenn hafa séð göngur koma í gegnum Alviðruna og hefur verið eftir því beðið að eitthvað af þeim fiski færi að veiðast í magni á svæðunum ofar í ánni. Það
Við höfum verið að bíða eftir þvi Sogið hrykki í gírinn. Árnar á suðurlandi hafa verið svolítið seinar til og Sogið er ekki undantekning frá því. Síðustu 2 daga, í gær og í dag, hefur hinsvegar mikið af fiski verið að ganga inná og í gegnum Alviðru svæðið. Veiðimaður sem kíkti á Alviðruna í
Nú höfum við tekið í sölu, nýtt Stangveiðisvæði á austurbakka Selfoss. Svæðið er neðan brúar og er viðbót við svæðið sem við kynntum síðasta sumar, og er ofan við brúna við Selfoss. Svæðið sem um ræðir er um 5-600 metra langt og samanstendur af flottum strengjum og fallegum breiðum. Sjá myndir að neðan. Vitað
© Veiða.is | Sími +354 897 3443 | [email protected] | www.veida.is