Laxá á Ásum – ein besta laxveiðiá Íslands
Laxá á Ásum er ein af víðfrægustu perlum laxveiðinnar. Í gegnum tíðina hefur óhemju mikið af laxi veiðst á stangirnar tvær sem leyfðar eru í ánni, svo leitun er að öðru eins. 30 ára meðaltalsveiði í ánni er 1.007 laxar. Veiðitímabilið er einungis 82 dagar.