Góð veiði í Brunná í sumar

Þegar keyrt er eftir þjóðvegi nr. 87 frá Húsavík og komið í Öxarfjörðinn við Klifshaga er keyrt yfir Brunná. Brunná er þekkt fyrir stórar og vænar sjóbleikjur. Einnig er um staðbundinn urriða og bleikja að ræða. Þá er von á sjóbirtingi þegar líður á sumarið. Umhverfi árinnar er rómað fyrir náttúrufegurð og fuglalíf.

2016-11-18T14:31:18+00:007. nóvember 2012|Fréttir|

Elliðavatn komið í Veiðikortið

Vinsældir Veiðikortsins hafa vaxið gífurlega síðustu 2-3 ár og er ljóst að þær munu ekki minnka við nýjasta meðlim þess, Elliðavatnið. Í tilkynningu sem send var út í dag var tilkynnt að samningar hefðu náðst milli Veiðikortsins ehf og Veiðifélags Elliðavatns. Næstu 3 árin, hið minnsta, verður Elliðavatn hluti af Veiðikortinu. Hér má lesa nánar

2012-11-02T10:46:38+00:002. nóvember 2012|Fréttir|

Veiðisvæði Strengja – sumarið í máli og myndum

Veiðiþjónustan Strengir er einn elsti starfandi þjónustuaðilinn við veiðimenn hér á landi. Fyrsta starfsár Strengja var árið 1988 og alla tíð síðan þá hafa starfsmenn þess lagt mikla áherslu á persónulega og góða þjónustu við innlenda og erlenda veiðimenn. Í gegnum árin hefur fyrirtækið komið að leigu á mörgum af bestu lax- og silungsveiðiám landsins.

2016-11-18T14:31:18+00:001. nóvember 2012|Fréttir|

Póstlistaleikur veiða.is

Nú höfum við hér á veiða.is farið af stað með póstlistaleik. Flott flugubox eru í verðlaun fyrir þá sem komast í pottinn. Til að komast í pottinn þarftu að gera eitt af eftirfarandi; 1) Skrá þig á póstlistann, 2) Deila þessari mynd/frétt meðal vina þinna, 3) Senda fréttabréf veiða.is áfram til einhvers sem þú telur

2012-10-30T09:07:26+00:0030. október 2012|Fréttir|

Krossá á Skarðsströnd – gott veiðisumar að baki

Umhverfi Krossár er afar fallegt, vaxið kjarri og lyngi og með útsýni út á Breiðafjörð. Við eðlilegar kringumstæður er hún fremur vatnslítil og því nauðsynlegt að fara með gát að veiðistöðum. Krossá rennur niður Villingadal og er fiskgeng um 12,4 km. Þessi netta laxveiðiá býr yfir 40 fjölbreyttum veiðistöðum; strengjum og hyljum.

2012-10-29T09:20:43+00:0029. október 2012|Fréttir|

Svalbarðsá – fín veiði í sumar

Svalbarðsá er dragá sem á upptök í Djúpárbotnum á Öxfirðingaafrétti. Hún er 37 km löng og fellur í Þistilfjörð. Vatnasvið hennar er 350 ferkm. Meðalveiði áranna 1974 til 2008 er 187 laxar. Leyfð er veiði á 2 til 3 stangir.

2016-11-18T14:31:18+00:0026. október 2012|Fréttir|

Flugubox veiða.is

Við höfum ákveðið að bjóða okkar tryggu gestum uppá lítið úrval fluguboxa sem tengjast veiðisvæðum hér á vefnum eða umræðu í fréttabréfi vefsins. Flugurnar í boxin eru sérvaldar af Júlla í Flugukofanum í Keflavík. Allt eru þetta vel hnýttar flugur, sumar af höfundunum sjálfum. Boxin eru; Þurrflugubox, Brúarárbox, Þingvallavatnsbox og Minnivallalækjarbox. Kíkið endilega á boxin hér að neðan

2016-11-18T14:31:18+00:0025. október 2012|Tilkynning|

Fluguhnýtingar

Það eru ýmsir sem taka upp þá iðju að hnýta flugur þegar tekur að halla að jólum en það er s.s. ekki fyrr en eftir áramót sem sú iðja nær hámarki hjá veiðimönnum. Hér á vefnum er hægt að skoða ýmiss hnýtingamyndbönd. Bæði myndbönd sem sýna hvernig á að læra grunn handtökin en einnig myndbönd

2012-10-24T21:27:52+00:0024. október 2012|Fréttir|

Norðfjarðará – Hver er lykillinn á bak við góða veiði?

Norðfjarðará fellur til sjávar í Norðfjörð, innanverðan, en stutt er þaðan út í Neskaupstað. Upptök hennar er á hálendinu inn af firðinum. Á leið hennar til sjávar falla í hana Selá og Hengifossá ásamt nokkrum smærri lækjum. Norðfjarðará er vel geymt leyndarmál í stangveiðinni en hún er ein af 10 bestu bleikjuám landsins.

2012-10-23T10:23:43+00:0023. október 2012|Fréttir|

Hvað er að gerast í laxveiðinni?

Það hefur vart farið fram hjá einum einasta veiðimanni að komið er að ákveðnum tímamótum í samskiptum veiðifélaga og leigutaka áa á Íslandi. Það er ekki endilega svo að samskipti milli þessara aðila hafi almennt séð verið slæm heldur má líklega skýra það vandamál sem komið er upp útfrá tveimur staðreyndum. Annarsvegar því að gnægð

2012-10-22T10:28:58+00:0022. október 2012|Fréttir|
Go to Top