Nú eru laus holl í Straumunum í Borgarfirði komin á vefinn.
Veiðisvæði Straumana er þar sem Hvítá og Norðurá í Borgarfirði sameinast. Svæðið er að vonum mjög vinsælt meðal veiðimanna enda fer um svæðið gríðarlega mikið af laxi sem er á leið uppí laxveiðiárnar ofar á svæðinu.
Í Straumunum veiðist m.a. lax sem er á leið í Þverá, Norðurá og Gljúfurá. Einnig er alltaf töluvert af laxi á svæðinu allt tímabilið. Um og uppúr miðjum júlí bætist síðan sjóbirtingur í aflann og eftir því sem líður á sumarið er hann stærri hluti af veiðinni. Seldar eru 2 stangir í Straumana og er þær ávallt seldar saman. 2 veiðihús eru á svæðinu sem standa veiðimönnum til boða.
Fluga er eina leyfilega agnið í júní og júlí en þegar kemur að mánaðmótum júlí/ágúst, þá má fara að nota spún einnig.
NÝTT: Í fyrsta skiptið núna í haust, þá bjóðum við uppá sjóbirtingsholl í Straumana. Laxveiðitímabilinu lýkur í byrjun sept en frá 9-26. sept þá seljum við sjóbirtingsholl í Straumana. Stangardagurinn á kr. 30.000.