Nú vorum við að fá nýtt veiðisvæði í sölu hér á veiða.is, Syðri-Brú í Soginu.

Syðri Brú er  stór skemmtilegt laxveiðisvæði, og eitt af fáum einnar stanga laxveiðisvæðum landsins. Syðri Brú er efsta veiðisvæðið í Soginu, í 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Svæðið er stutt og þægilegt og nær frá Landaklöpp niður að Merkjalæk um 2,5 km. 8 merktir veiðistaðir eru á svæðinu. Ber þar helst að nefna helst að nefna Landaklöpp, sem er efsti veiðistaður svæðisins og beint niður af veiðihúsinu. Landalöpp hefur í gegn um tíðina oft gefið frábæra veiði. Viljum við benda veiðimönnum á að öll veiði er bönnuð frá gömlu brú sem liggur ofan við Landaklöpp. Þar sem Landklöpp er efsti veiðstaður í Soginu þá safnast oft mikið af Laxi á Landaklöppinni.

Á svæði Syðri Brúar veiðist töluvert af bleikju, einnig reitingur af urriða.

Leyfileg er að taka einn smálax á dag undir 70 cm.  En allan silung sem veiðist er leyfilegt að taka. Eina leyfilega agnið er fluga.

Seldir eru stakir dagar og 2 til 3 dagar saman í hollum.

Veiðihúsið að Syðri brú er mjög vel útbúið í alla staði með svefnaðstöðu fyrir 6-8 manns.  Eldhúsið í húsinu vel útbúið í alla staði þar.  Fjölskylduvænt veiðihús þar sem stutt er í allskonar  afþreyingu.