Veiðin gengur vel í Gufuá þessa dagana og í gær var stærsti dagur sumarsins þegar 10 laxar komu á land. Það ánægjulega er ekki síst að þeir komu allir á efra svæðinu, vel fyrir ofan þjóðveg á stað nr. 38 og þar um kring. Hátt í 70 laxar eru þá komnir á land á þær tvær stangir sem leyfðar eru. Ein stöng er laus þann 16. júlí og tvær þann 19. – Fleiri lausar stangir eru í lok mánaðarins og í byrjun ágúst. Sjá nánar hérna.

Hér að ofan er mynd af löxunum tíu sem komu á land í gær. Þeir voru allir á bilinu 4-5 pund.

[email protected]