Úteyjarsvæðið í Hólaá er eitt best bleikjusvæðið á suðurlandi. Veiðin á svæðinu getur sveiflast á milli ára, en í sumar hefur veiðin verið með albesta móti.
Mikið af bleikju byrjaði að færa sig inn á eftir hluta svæðisins, í Hóláá, snemma í júní. Bleikjurnar koma líklega bæði úr laugarvatni og einnig neðri hluta Hólaár. Bleikjan er bæði í úfallinu en mest í beygjunni þar fyrir neðan og næstu 200 metrum í framhaldi af henni. Bleikju má svo finna nánast niður allt Úteyjarsvæðið. Algengt er að veiðimenn séu að setja í 10-15 bleikjur á dag, jafnvel fleiri.
Urriðinn er líka á svæðinu – mest efst í útfallinu en einnig þegar komið er niður á neðri hluta svæðisins.
Veitt er á 8 stangir á Úteyjarsvæðinu og það nær yfir bæði hluta Laugarvatns og hluta af Hólaánni sjálfri. Veiða má á flugu í Hólaá en nota má hefðbundar stangir í vatninu.