Stóra-Laxá fellur um 90 km leið, frá Grænavatni niður á milli Hrunamanna- og Gnúpverjahrepps, í Hvítá hjá Iðu. Hún er dragá, all vatnsmikil með um 512 km² vatnasvið. Stóra-Laxá er laxgeng langt inn í Laxárgljúfur sem gerir það að verkum að landslag með henni er bæði fjölbreytt og mikilfenglegt.

Flestir veiðimenn þekkja veiðisvæðin sem oft hafa verið nefnd Stóra Laxá I, II, III og IV – sem núna heita Neðri Stóra Laxá og Efri Stóra Laxá – en færri þekkja svæðið sem þar er fyrir ofan – það er svæðið sem er í sölu hérna á vefnum.

Gljúfrin
2 stanga ævintýri í efstu giljum Stóru Laxár. Stangirnar eru seldar saman eða stakar, stakir dagar í senn. Ef óskað er eftir er hægt að fá gistingu í fínu húsi, I sjálfsmennsku.

Veiðisvæðið geymir bæði stóra laxa og urriða.

Veiðisvæðið sjálft er 2-3 km langt með nokkrum merktum nefndum veiðistöðum, en fleiri ónefndum þar á milli.

Verð veiðileyfa er stillt í hóf, kr. 39.000 stöngin.

Sjá meira hérna