Menn bíða oft óralengi eftir þeim stóra og sumir veiðimenn komast aldrei yfir 20 pundin. Þessi drengur hér á myndinni aftur á móti, er aðeins 9 ára gamall. Hann veiddi þennan 96 cm hæng í Kúttneshyl í Hofsá. Ólafur Ragnar Garðarsson leiðsögumaður, heldur á laxinum. Því miður fylgdi nafn piltsins ekki með myndinni. Glæsilegur fiskur, til hamingju.

 

[email protected]