Nú fer að hylla undir lok laxveiðivertíðarinnar þetta árið – já, ennþá ca. 4 vikur eftir í flestum ám. Hér að neðan er smá yfirlit yfir laus leyfi á vefnum hjá okkur

Hallá – Örfá holl laus í Hallá Veiðin hefur verið góð að undanförnu. Lausu hollin eru í september. Sjá hér.

Hvannadalsá –  Veiðin í Hvannadalsá hefur verið framar vonum þetta sumarið. Meira af fiski í ánni en undanfarin ár og veiðimenn strax farnir að endurbóka fyrir næsta ár.  Það eru örfá holl laus í haust. Þar á meðal 28-30. ágúst. Sjá hér.

Hvolsá og Staðarhólsá – Veiðin hefur verið góð í H&S í sumar og fiskurinn vel dreifður. Við eigum 4 laus holl í september. Seldar eru 4 stangir og er maðkur og fluga leyfilegt agn. Sjá hér

Gufuá – Ágæt veiði hefur verið í Gufuá í sumar og laxinn komst snemma uppá efra svæðið. Seldar eru stakir dagar, stakar stangir frá morgni til kvölds. Ódyr veiðileyfi. Sjá lausa daga hérna.

Langadalsá – Langadalsá er góð síðsumars og haustá. Fín veiði hefur verið í ánni í sumar. Örfá holl eru laus í lok tímabils. Sjá hér.

Laxá í Miklaholtshreppi – Örfáir veiðidagar eru eftir í Laxá en tímabilinu lýkur snemma í sept. Seldar eru 2 stangir saman. Sjá hér. 

Brennan í Borgarfirði  – Örfá holl laus og eru þau núna á betra verði. Lax og birtingur. Sjá hér.

Blanda – Nú eru hægt að kaupa stakar stangir og staka daga inná Blöndu I, II og III – og örfá holl laus í Blöndu IV. Ekkert yfirfall fyrirsjáanlegt. Sjá hérna.

Sog, Alviðra – Stakir dagar og stundum stakar stangir. Veiðum fram í sept. Sjá hérna.

Sog, Bíldsfell – Örfáir dagar lausir. 3 stangir seldar saman í pakka. Sjá hér