Flóðatangi – Neðsta veiðisvæði Norðurár er aftur komið í sölu á veiða.is.
Neðst í Norðurá er tveggja stanga Laxa og silungasvæði sem kallað hefur verið Flóðatangasvæði. Þar í gegn fer allur sá lax sem gengur í ána og því sannarlega von að ná þar í lax. Á svæðinu er einnig nokkuð af staðbundnum silungi, urriða og bleikju. Þar eru nokkrir fornfrægir veiðistaðir eins og Kastalahylur, Hlöðutúnskvísl og Ármót en svæðið býður upp á marga veiðistaði. Veiðimörk eru vel merkt og er brýnt að virða þau.
Fín laxveiði var á svæðinu í sumar en einnig skiluðu um 100 silungar sér í veiðibókina.