Hvolsá og Staðarhólsá – Veiðin hófst í Hvolsá og Staðarhólsá fyrir stuttu síðan. Menn sem voru við ána í dag sögðu að mikið af laxi væri í lóninu og þar fyrir utan en einnig væri lax genginn uppí árnar, allt uppí Klapparfljót sem er ofarlega í Staðarhólsánni. Þar sáumst nokkrir stórir laxar nú í morgun. Stórstreymi var í gær og fyrradag og virðist mikið af laxi hafa notað tækifærið og gengið uppí lónið og uppí árnar. Nokkrir laxar eru núna komnir á land og töluvert af bleikju.

Spennandi tími er framundan í Hvolsá og Staðarhólsá og fyrir áhugasama þá er hægt að finna upplýsingar um lausa daga hérna. M.a. er Verslunarmannahelgin laus, 2 holl.
Einnig erum við með í endursölu dagana 29-31. júlí, sem er helgi.

Uppfært kl 23:00 12. júlí – fín veiði hjá veiðimönnum sem hófu veiðar í dag, Settu í nokkra í Staðarhólsá og einnig í lóninu. Nokkrir á land. Lítur vel út fyrir næstu daga.