Hlíðarvatn í Selvogi er eitt þeirra svæða sem hefur verið hvað lengst í sölu hér á veiða.is. Hjá okkur er í sölu stangir sem Stangveiðifélagið Árblik í Þorlákshöfn, hefur yfir að ráða í Hlíðarvatni. Með veiðileyfunum fylgir afnot af veiðihúsi/kofa félagsins við vatnið. Nú er að hefjast áskriftartími félaga í Árbliki en um mánaðamótin munu svo Veiðileyfi í Hlíðarvatni fara í almenna sölu. Ef þú ert ekki veiðifélagi í Árbliki, en myndir vilja bóka daga eða dag í vatninu um leið og við opnum fyrir almennar bókanir, sendu okkur þá endilega póst á [email protected] og við munum láta þig vita um leið og leyfin koma á vefinn.

 

Mynd: Þorsteinn J með eina væna kusu úr Hlíðavatni. Ljósmyndari, Einar Falur