Veiðin í Brúará, fyrir landi Spóastaða, hófst í gær. Reynslumiklir Brúarárveiðimenn stóðu vaktina í gær. Vignir Arnarson gaf okkur smá skýrslu eftir veiði gærdagsins – Fiskur fór að velta sér við brúna um leið og sólin fór að skína, milli kl. 11 og 13. Þá náðum við 11 fiskum, bleikjum og urriðum. Við tókum með okkur nokkra fiska en slepptum öðrum. Veiðistaðir voru við brúna, í Kerlingarvík, fyrir neðan veiðihúsið og niður á Breiðabakka. Fiskur sást um alla á. Allir fiskar komu á flugur. – Vignir setti einnig í eina mjög væna bleikju sem, eftir eina kraftmikla roku, hvarf í djúpið með munnskraut í öðru vikinu.
Hérna má nálgast veiðleyfin í Brúará.
Myndin er af 2 fiskum sem komu á land í gær úr Brúará.