Fáskrúð í Dölum er 2-3 stanga laxveiðiá, ein af þeim betri í Dölunum. Meðalveiði síðustu 10 ára er um 300 laxar á sumri. Síðasta haust urðu þær breytingar að SVFR, sem hafði farið með veiðirétt um helming veiðidaga í ánni í fjölmörg ár, missti þá daga þegar nýr eigandi af Ljárskógum ákvað að nýta sína daga sjálfur. Stangaveiðifélag Akranes hefur farið með veiðirétt hins helmings veiðidagana, og verður það þannig áfram í ár. Veiða.is hefur séð um sölu á lausum hollum fyrir SVFA.
Eins og staðan er núna, þá eigum við einungis eitt laust holl í Fáskrúð eftir. Þetta holl er frá 9-11. ágúst. Hefst eftir hádegi fimmtudaginn eftir Verslunarmannahelgina og lýkur á hádegi laugardaginn þar á eftir. Einungis er veitt á flugu í Fáskrúð í sumar. Hérna er hægt að fá meiri Upplýsingar um þetta holl.