Fyrsti formlegi veiðidagurinn í Hlíðarvatni við Selvog, var í gær. Veðurguðirnir tóku s.s. ekki alltof vel á móti veiðimönnum en Veiðigyðjan var svo sannarlega með í för. Að hámarki 14 veiðistangir eru leyfðar í Hlíðarvatni dag hvern, á vegum 5 veiðifélaga. Ástundun var ólík milli veiðimanna félagana í gær. Sumir stóðu vaktina í gegnum hvern slyddubylinn á fætur öðrum en aðrir kíktu við í stutta stund – svona rétt til að kanna hvort bleikjan væri í stuði. Þess má geta að veðrið var mjög köflótt í gær, fínt veður inná milli.
Við erum ekki með heildarveiði dagsins en við vitum að í bókina hjá Árbliki voru komnar 12 bleikjur í lok dags. Veiðimenn í nágranna veiðifélagi Árbliks, Ármönnum, veiddu hinsvegar um 60 bleikjur yfir daginn sem er aldeilis frábært. Margar flottar bleikjur komu á land, þær stærstu hátt í 60 cm langar.
Veiðitúrarnir í Hlíðarvatn marka upphaf veiðitímabilsins hjá mörgum veiðimönnum. Allir maí dagarnir eru uppseldir hér á vefnum en örlítið laust í júní og svo eru dagar lausir í júlí og ágúst. Innifalið í verðinu er veiðileyfi fyrir 2 stangir og aðgangur að veiðihúsi Árbliks.