Veiðin í Langadalsá hefur verið betri þetta árið en undanfarin ár og er töluvert mikið af fiski víða í ánni. Við fengum senda smá frétt að vestan.
„Mynd: Steingrímur Einarsson með 1 fallegan bolta úr Efra Bólsfljóti. Siggi og Steingrímur voru við veiðar í Langadalsánni 6-7. ágúst. Það var búin að vera leiðinda norðan átt og kalt svo þeir félagar voru s.s. ekkert of bjartsýnir. Það var ágætis veður þegar þeir mættu til veiða, en svolítið kalt og bjargaði lopapeysan því. Kuldinn kom þó ekki i veg fyrir að þeir fór strax að setja í fiska og lönduðu 4 löxum og einni vænni bleikju (3 smá laxar og 1 höfðingi). Þeir sáu fiska víða þó svo þeir hafi verið smá latir í töku, reistu þeir nokkra með sunray, en þess má geta að að þeir voru allir að taka smáar flugur nr 16. Siggi og Steingrímur voru því mjög sáttir eftir þessa frábæru daga. Svo Langadalsáin er aðeins að minna á sig eftir síðustu ár sem hafa verið mjög léleg.“
Eins hefur verið að koma fiskur á hverjum degi á land í Hvannadalsá og ekki má gleyma því að norðan áttin er töluvert hvassari í Hvannadalnum en í Langadalnum.
Tilboð á dögunum 13-15. ágúst sem vert er að kíkja á, stöngin á 75.000.- pr dag + húsgjald