Silungasvæði Víðidalsár er neðsti hluti Víðidalsár áður en hún rennur í Hópið en svæðið er eitt besta silungasvæði landsins
Mikið af vænni sjóbleikju veiðist á svæðinu en einnig veiðast vænir sjóbirtingar. Algeng stærð á bleikjunni er 2-3 pund, en 4-6 punda bleikjur veiðast iðulega. Hægt er að kíkja á veiðitölur inni á AnglingIQ.
3 stangir eru seldar saman í pakka í 2 eða 3 daga. Húsgjald er innifalið í verðinu – uppábúið og þrif – húsið er eitt albesta sjálfmennsku húsið í veiðibransanum.