Flóðatangi – Neðsta veiðisvæði Norðurár er aftur komið í sölu á veiða.is. 

Seldar eru 2 stangir saman á flottu verði, kr. 26.900 – 32.900 dagurinn. Silungsveiði með laxavon. Verðið er fyrir 2 stangir.

Neðst í Norðurá er tveggja stanga Laxa og silungasvæði sem kallað hefur verið Flóðatangasvæði. Þar í gegn fer allur sá lax sem gengur í ána og því sannarlega von að ná þar í lax. Á svæðinu er einnig nokkuð af staðbundnum silungi, urriða og bleikju. Þar eru nokkrir fornfrægir veiðistaðir eins og Kastalahylur, Hlöðutúnskvísl og Ármót en svæðið býður upp á marga veiðistaði. Veiðimörk eru vel merkt og er brýnt að virða þau.

Fín laxveiði var á svæðinu í sumar en einnig skiluðu um 100 silungar sér í veiðibókina.

Kikið á lausa daga hérna.