Sjóbirtingurinn er mættur í vatnamótin. Holl sem var að veiðum í kringum 8. ágúst náði hátt í 20 fiskum, þar á meðal einum 20p birtingi. Síðan þá hefur veiðst ágætlega, meðal annars einn 13 punda birtingur.

 

Vatnamótin eru einn besti og gjöfulasti veiðistaður á Íslandi. Þar veiðist aðallega sjóbirtingur en einnig lax og bleikja. Iðulega veiðast 20p birtingar eins og sá sem koma á land fyrr í ágúst. Veitt er á 5 stangir í Vatnmótunum. Fréttirnar um að birtingurinn sé mættur á svæðið lofar góðu fyrir framhaldið í Vatnamótunum og þau svæði sem eru ofar í Vatnakerfinu.

Nú er ljóst að áherslan og athyglin mun færast meira yfir á Sjóbirtingslóðir og er vonandi að haustið verði gott og bæti upp að hluta, dauft laxveiðisumar.

[myndin hér að ofan tengist ekki fréttinni, við fáum vonandi mynd af stóra birtingnum fljótlega]