Veiðitímabilið 2013 nálgast óðfluga. Umræðan um næsta sumar hefur s.s. ekki verið öll á gleðilegu nótunum, hefur að miklu leyti snúist um verð veiðileyfa og hve dapurt veiðisumarið 2012 var. En það er samt margir sem horfa spenntir til næsta sumars og eru strax farnir að undirbúa það. Ýmsir hafa sagst ætla að helga næsta sumri silungsveiði og er það vel. Laxinn togar hinsvegar fast í marga og því má búast við að bakkar ánna verði svipað þéttsetnir og síðustu sumar, maður kemur jú í manns stað. Þau eru fjölmörg veiðisvæðin sem veiðimenn geta valið úr en nokkur þeirra mest spennandi eru svæði Veiðiþjónustunnar Strengja.

Veiðisvæði Strengja eru flestum vel kunn en þau eru; Breiðdalsá, Jökla og Fögruhliðará, Minnivallalækur og Hrútafjarðará. Sala veiðileyfa fyrir sumarið 2013 er komin á fullt og lítur vel út. En hvað hafa svæðin uppá að bjóða og eru einhverjar breytingar fyrirhugaðar fyrir næsta sumar?

 

Breiðdalsá

Óvíða veiða menn í fallegri á en Breiðdalsá og óvíða er umhverfi veiðiár fallegra. Veiðihúsið við Breiðdalsá er jafnframt með þeim glæsilegri sem finnast við íslenska veiðiá. Veiðisvæði árinnar skiptist í Silungasvæði og Laxasvæði. Sú fiskirækt sem átt hefur sér stað í Breiðdalsá hefur skilað gríðarlega háu hlutfalli af stórum laxi. Sem dæmi um það þá var meðalþyngd veiddra laxa sumarið 2012 rétt um 5 kg. Um 100 þ. seiðum var sleppt í ánna fyrir komandi veiðitímabil sem ætti að jafnaði að skila um 1.000 veiddum löxum. Veiðin síðustu ár hefur sveiflast frá 464 löxum uppí 1.430 laxa.

Silungasvæðið í Breiðdalsá er fjölbreytt og skemmtilegt. Um 600 silungar veiddust sumarið 2012. Mikið af bleikju veiddist í ósnum en urriðasvæðin sem eru ofar í Breiðdalsá gáfu einnig vel. Einnig veiðist alltaf af laxi í bland, sérstaklega er líður á sumarið er laxinn fer uppá á efstu svæðin.

Verð veiðileyfa: Silungasvæði, Kr. 14.800- 24.800 og er innifalinn uppábúinn gisting, fyrst í vorveiðinni í Veiðihúsinu Eyjar og síðar í íbúðarhúsi ofar í dalnum eftir að laxveiðitimabilið hefst., sjá nánar inná www.strengir.is.

Jökla og Fögruhlíðará

Veiðisvæði Jöklu og Fögruhlíðarár þarf líklega ekki mikið að kynna. Svæðið hefur fengið samdóma lof allra sem þar hafa veitt. Árnar hafa að geyma ógrynni fallegra veiðistaða, eins og t.d. Steinbogann sem er einn þekktasti veiðistaður landsins í dag. Um er að ræða þrjú veiðisvæði og aðalsvæðið heitir Jökla I og Fögruhlíðará þar sem veitt er í Jöklu ásamt fögruhlíðará ásamt hliðaránum Kaldá og Laxa í Jökulsárhlíð.

Svo er efri hluti Jöklu kallaður Jökla II þar sem er bleikja og núna með tilkomu laxastigans við Steinboga líka góð laxveiðivon á hóflegu verði.

Síðan er Fögruhlíðarósinn kapítuli útaf fyrir sig en hann hefur notið vaxandi vinsælda síðustu sumur og vor. Hægt er að lenda í ógleymanlegri sjóbleikjuveislu í Fögruhlíðarós. Nýtt fyrir næsta sumar er að innifalið er í veiðileyfinu gisting í 3 herbergja húsi og stangardagurinn er kr. 19.800 fyrir þetta svæði. 

Við hvetjum alla til að kynna sér svæðin þarna betur og plana ferð austur næsta sumar.
Verð veiðileyfa: Sjá nánar inná www.strengir.is.

Minnivallalækur

Minnivallalækur á engann sinn líka í heiminum. Kristaltært og frjósamt lindarvatnið veitir umgjörð utan um einhver allra bestu búsvæði urriða sem finnast á Íslandi. Það er óvíða í heiminum sem veiðimenn eiga möguleika á að setja í tíu punda urriða á pínulitlar þurrflugur í stærðum 18 og jafnvel minni.
Á hverju ári veiðast urriðar sem eru um og yfir 10 pund og fjöldi fiska á bilinu 4-8 pund. Stærsti urriðinn sumarið 2011 var var rúm 16 pund úr Stöðvarhyl! Vorið getur oft á tíðum verið stórkostlegt og fyrstu dagana eftir opnun 1. apríl er oft hægt að fá ævintýralega veiði á straumflugur og stærri púpur. Þegar líða tekur á vorið og snemmsumars kviknar á lífríki lækjarins fyrir alvöru og hlutverk veiðimanna fer að verða erfiðara, flugurnar minnka og þurrfluguveiðin byrjar. Um mitt sumar veiða menn á pínulitlar flugur og örgrönnum taumum, skríða um bakkana og kasta á fiska sem menn sjá vel í kristaltæru vatninu. Þegar hausta tekur stækka flugur á ný og fiskur fer aftur að verða árásargjarn. Oft lenda menn í ævintýrum í haustveiðinni í læknum. Minnivallalækur er sannarlega paradís urriðaveiðimannsins.

Verð veiðileyfa i Minnivallalæk er kr. 19.800 -24.800 á stangardag innifalið með klassa gistingu á árbakkanum með útsýni yfir Húsabreiðu .

Hrútafjarðarár

Hrútafjarðará hefur í gegnum tíðinni verið ein af betri fluguveiðiám landsins en einungis er veitt á flugu og hefur það verið þannig um árabil. Meðalveiði í ánni á einungis þrjár stangir er allt að 300 löxum á sumri, ásamt góðri bleikjuveiði á neðstu veiðistöðum. Mjög gott veiðihús er við ánna.

Nánari upplýsingar um verð veiðileyfa er að finna inná www.strengir.is.

Margir veiðimenn hafa það markmiði að kynnast a.m.k. einu nýju veiðisvæði á hverju sumri. Veiðisvæði Strengja ættu að koma nokkuð sterk þar inn næsta sumar. Hvort sem veiðimenn eru að leita af lax- eða silungsveiði, þá er vart hægt að fá meiri fjölbreytni en á veiðisvæðum strengja.