Hallá á Skagaströnd er falleg lítil dragá sem rennur til sjávar rétt sunnan við Skagaströnd í um 10 mínútna fjarlægð frá þjóðvegi 1 við Blönduós. Veiðisvæðið er um 12 km að lengd og er veitt á tvær stangir. Fluga er leyfilegt agn.

Veiðin í Hallá hefur verið fín núna í ágúst. Flest holl verið að setja í laxa og núna eru nálægt 50 laxar komnir í bókina. Flott vatn er í ánni og haustið er framundan – haustið er einmitt einn besti tíminn í ánni. Við heyrðu í mönnum sem eru i Hallá í núna – þeir náðu einum flottum, nýgengnum smálaxi neðarlega í ánni í morgun og sáu fleiri.

Hér að neðan má finna laxa úr 5 laxa holli í síðustu viku – flottir laxar, bæði nýjir og eldri.

Það eru 3 laus holl í Hallá í Sept.  Stangardagurinn á kr. 42.000 og 49.000. Sjá nánar hérna,

Svo er um að gera að kíkja á myndband frá Villimönnum – þeir heimsóttu Hallá, síðsumars, fyrir nokkrum árum.