Norðfjarðará fellur til sjávar í Norðfjörð, innanverðan, en stutt er þaðan út í Neskaupstað. Upptök hennar er á hálendinu inn af firðinum. Á leið hennar til sjávar falla í hana Selá og Hengifossá ásamt nokkrum smærri lækjum. Norðfjarðará er vel geymt leyndarmál í stangveiðinni en hún er ein af 10 bestu bleikjuám landsins. Að jafnaði veiðast um 700 bleikjur í ánni en sumarið í fyrra sló öll met. Heildarveiði var 1.142 bleikjur og 11 laxar. Bleikjuveiðin var því meira en 60% umfram meðalveiði.

Nú er búið að opna fyrir bókanir fyrir sumarið 2013 í Norðfjarðaránni. Það er um að gera fyrir áhugasama að bóka sem fyrst þar sem áin var þétt setin allt síðasta sumar. Það eru ekki margar bleikjuár sem hafa verið í sókn síðustu árin en Norðfjarðará er undantekning frá þeirri staðreynd. Veitt er á 3 stangir í Norðfjarðará og leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Þeir fyrir austan eiga sitt leynivopn sem þeir bjóða bleikjunni óspart. Það er flugan Freddi en stór hluti þeirra bleikja sem komu á land komu á þessa flugu. Hún sést hér til hliðar.

Hér er hægt að fá meiri upplýsingar um Norðfjarðará.

[email protected]