Það er alltaf spennandi þegar veiðimenn eru tilbúnir að deila með öðrum veiðmönnum leynivopnum sem þeir luma á í fluguboxinu. Oft er um að ræða flugur sem þeir sjálfir hafa hnýtt og hannað. Konráð Lúðvíksson, fluguveiðimaður og hnýtari var svo góður að leyfa okkur að sjá eitt af hans leynivopnum, fluguna Gullbrá sem er hans hugarsmíð en á þó sýnar tilvísanir eins og flestar aðrar flugur.
Hugmyndina að þessari laxaflugu fékk hann í Veiðivötnum sumarið 2010, en þangað fer hann einu sinni til tvisvar á ári. Hópur veiðimanna sem sækir vötnin heim veiða mikið með gullnum Nobbler sem er mjög veiðinn í vötnunum. Konráð vildi sjá hvort hann gæti ekki heimfært kosti þessa Nobblers yfir á laxaflugu. Konráð veiðir mikið á flugur sem Kristján Gíslason hannaði og hann nýtti sér einnig hugmyndafræði þeirra, t.d. Iðunnar, þegar Gullbrá varð til. Konráð hnýtir Gullbrá bæði sem tví- og þríkrækju og alltaf á gullkróka. Síðan flugan fór fyrst undir í Flekkudalsá sumarið 2011, hafa langflestir laxar sem Konráð hefur sett í, fengist á flugana Gullbrá.
Við þökkum Konráð fyrir.
{gallery}gullbra{/gallery}