Laxveiðivertíðin byrjað betur en flesta óraði fyrir. Víða voru opnanir það góðar að þær skráðu sig í sögubækur. Nú er Jónsmessustraumurinn gengin yfir, að mestu og hann virðist hafa skilað fínum göngum í margar Ár. Ekki ætti þó að gera of mikið úr þeim straumi því meira máli skiptir hvort stóri straumurinn 10. júlí standi undir nafni. Hann hefur í gegnum tíðina skilað mestu uppí árnar. En í dag voru birtar nýjar veiðitölur ár ánum.

Norðurá er komin í 350 laxa, meira en þriðjung þeirrar veiði sem var í fyrra sumar og daglega veiðast 15-20 laxar. Þverá Kjarrá er komin í 217 laxa og Haffjarðará er komin í 135 laxa. Svo er það Eystri með 73 laxa, Flókan með 66, Blanda með 64, Ytri með 53, Laxá í Kjós með 30 og aðrar minna.

Að ofan er einn þeirra laxa sem kom á land í opnun Ytri Rangá um daginn. Veiðimaðurinn heitir Sigurður Jóhannsson. Laxinn, 85cm hrygna, kom á land í Borginni og var sett í klak.

[email protected]