Hvolsá og Staðarhólsá falla í einum ósi til sjávar í Saurbæ, Dalasýslu. Hvolsá sjálf er 9 km. löng þangað sem Svínadalsá og Brekkudalsá sameinast. Staðarhólsá er laxgeng 7,5 km að fossi hjá Kjarlaksvöllum. Norðan við ósana er varnargarður sem myndar lón sem stendur eftir þegar fjarar, en sjór fellur upp í báðar árnar.
Hvolsá og Staðarhólsá opnuðu nú í vikunni með frábærri veiði. Fyrsta daginn komu ellefu laxar á land en kvöldið áður var smá forskot tekið á sæluna en þá komu 6 laxar á land. Hér að ofan er Gunnar Sigurðsson með tvo væna laxa sem komu á land úr Hvolsá.
Byrjunin er ein sú besta sem menn muna eftir og er góð fyrirheit fyrir sumarið. Vel er selt í árnar í sumar en eitthvað laust þegar kemur undir lok tímabilsins.
{gallery}hvolsa1{/gallery}