Við höfum síðustu daga heyrt af nokkrum sem sett hafa í lax í Brúará fyrir landi Spóastaða, en allir sluppu þeir aftur. Það var síðan hún Ólöf Snæhólm Baldursdóttir sem loksins náði að landa laxi á svæðinu, 2,5 kg. hæng sem náðist á brotinu fyrir ofan fossinn Dynjanda. Laxinn tók í fyrsta kasti. Ágæt bleikjuveiði hefur einnig verið í ánni, en þó heyrist að enn brenni við að veiðimenn láti hjá líða að skrá afla í veiðibókina. Ef slíkt gleymist, þá má alltaf senda póst á [email protected] og gefa upp aflatölur.

Nokkuð er um lausar stangir í Brúará á næstu dögum. Hér má sjá þær.

[email protected]