Nú er tími stórlaxana svo sannarlega að koma. Við höfum heyrt af drekum sem hafa komið á land í Vatnsdalsá, Ytri Rangá, Stóru laxá og víðar að undanförnu. Heiðar Valur Bergmann hefur verið við veiðar í Hofsá síðustu 2 daga og fengið að kynnast Drottningunni í sínu fínasta pússi. Hann byrjaði á að fá eina 84 cm hrygnu. Bætti svo um betur og náði einum 94 cm hæng og svo í dag náði hann einum 101 cm höfðingja í Ofurstahyl. Þessa flottu laxa má sjá hér að neðan, sá „minnsti“ er fyrstur í röðinni.

Hofsá var í gærkveldi komin í 602 laxa en 137 laxar veiddust í vikunni sem leið. Lokatalan í fyrra var 1.008 laxar og því all góðar líkur á að hún nái þeirri tölu í sumar.

{gallery}hofsa1{/gallery}

[email protected]