Sjóbirtingsvertíðin er farin af stað og sumstaðar fer hún mjög bratt af stað. Veiðin í Eldvatni í Meðallandi hefur verið frábær síðustu 5-6 dagana. Síðustu 3 dagar gáfu 55 fiska, 38 birtinga og 17 laxa. Hollið þar á undan var með 31 fisk, 19 birtinga og 12 laxa. Frábær veiði á þessu flotta veiðisvæði. Nýjir leigutakar tóku við svæðinu í vor og lofar þessi byrjun góðu fyrir þá. Öllum birtingi skal sleppt á svæðinu og fluga er eina leyfilega agnið. Það eru laus holl í September eins og sjá má hérna.