Haustið er komið og þetta er tími stórlaxana, ekki síst í Vatnsdalsá. Veiðin í Vatnsdalnum hefur verið mjög góð í sumar. Síðasta miðvikudag voru 932 laxar komnir á land í ánni sem er nærri þrefallt fleiri laxar en allt fyrra sumar. Vatnsdalsá er ekki síst þekkt fyrir stóra laxa og nú koma þeirr nærri daglega á land í Vatnsdalnum. Hér eru myndir af þeim þremur flottum löxum sem komu á land nú í vikunni. Hægt er að fylgjast með fréttum úr Vatnsdalsá inni á vatnsdalsa.is.
Mynd 1: Sturla Örlygsson með 95 cm hæng sem úr Línufljóti. Hann tók fluguna „Júdas“ nr. 14.
Mynd 2: Alli Guðjóns með einn 98 cm hæng úr Þórhallastaðahyl.
Mynd 3: Þorbjörn Helgi Þórðarsson náði þessum 97 cm höfðingja í Vaðhvammi á Frigga.
Mynd 3: Þorbjörn Helgi Þórðarsson náði þessum 97 cm höfðingja í Vaðhvammi á Frigga.
{gallery}vatn{/gallery}